Laugardagur, 1. mars 2008
Geir heyrði engin ný sannindi
Það eru búnar til miklar fréttir um það,að Geir Haarde hafi verið tjáð það í Brussel,að ekki væri unnt að taka upp evru án aðildar að ESB.Þetta eru engin ný sannindi. Norðmenn fengu að vita þetta fyrir 8 árum og auðvitað gildir það sama fyrir Ísland og Noreg. En samt hafa menn látið þannig hér eins og það væri möguleiki að taka upp evru án aðiðar að ESB.En allir sérfræðingar og kunnáttumenn um málið vissu,að þetta var ekki möguleiki. Geir heyrði ekkert nýtt um málið.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.