Margir flytja út vatn

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og Halldór Guðbjarnason frá Brúarfoss ehf. undirrituðu vatnssölusamning í dag. Brúarfoss hyggst setja á fót vatnsverksmiðju á Ísafirði og innan 6-8 mánaða hefst útflutningur á vatni í gámum.

Vatninu verður dælt í þar til gerðar blöðrur og sent til Þýskalands til fyrirtækja sem þurfa ferskt vatn í framleiðslu sína. Einnig er kveðið á um 15.000 fermetra lóð á hafnarsvæðinu á Ísafirði undir átöppunarverksmiðju og hefur Brúarfoss rétt rúm tvö ár til að hefja byggingarframkvæmdir.

Í máli Halldórs Guðbjarnasonar kom fram að í átöppunarverksmiðjunni yrðu til störf fyrir tugi manna og að í henni yrði vatni tappað á neytendaumbúðir. Brúarfoss mun fá allt umframvatn sem fellur til á Ísafirði eftir að þörfum heimila og fyrirtækja hefur verið annað.

Áður hefur komið fram í fréttum,að Jón Ólafsson,sem áður rak Stöð 2 hefur hafið vatnsútflutning,m.a. til Bandaríkjanna og  tekur hann vatnið við Þorlákshöfn.Það,sem vekur athygli við vatnsútflutninginn frá Ísafirði er að,að vatnið er flutt út í blöðrum  í gámum  til Þýskalands og verður vatninu  þar tappað í neytendaumbúðir. Síðar mun ætlunin að  reisa einnig átöppunarverksmiðju á Ísafirði.

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Vatnssölusamningur undirritaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband