Þriðjudagur, 18. mars 2008
Kísilvinnsla i Þorlákshöfn
Samkvæmt heimildum er um að ræða bandarískt fyrirtæki og hafa viðræður við það staðið yfir frá því á síðasta ári. Viljayfirlýsingin var samþykkt á stjórnarfundi OR síðastliðinn fimmtudag en hún snýr að sölu á 90 til 100 MW (megavött) af orku til verksmiðjunnar. Til samanburðar má nefna að orkuþörf álvers Alcan í Straumsvík er um 300 MW. Í yfirlýsingu OR er auk þess gert ráð fyrir að fyrirtækið geti útvegað 85 MW í viðbót til starfseminnar síðar.
Hjörleifur segir framleiðsluna vera mjög vistvæna og þurfi ekki útblásturskvóta.
Þetta eru ánægjulegar fréttir. Það er áríðandi að greiða fyrir vistvænni starfsemi,sem ekki þarf útblásturskvóta. Sennilega er næg eftirspurn eftir slíkri starfsemi hér á landi.
Björgvin Guðmundsson
Ný kísilvinnsla í Þorlákshöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.