Þriðjudagur, 1. apríl 2008
Samráð gegn verðhækkunum
Fulltrúar ASÍ og neytenda áttu fund með Björgvini G. Sigurssyni viðskiptaráðherra, í viðskiptaráðuneytinu í morgun. Á fundinum voru Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ. Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna, Þuríður Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna og Þórunn Anna Árnadóttir frá Neytendastofu, voru einnig viðstödd fundinn.
Að sögn Hennýar Hinz, voru boðaðar verðhækkanir ræddar á fundinum og leiðir til þess að draga úr þeim ræddar. Engar formlegar ákvarðanir voru teknar á fundinum, en að sögn Hennýar var staða neytenda rædd og ákváðu fundarmenn að stilla saman strengi, og halda aftur fund fljótlega í framhaldinu.
Það er ánægjulegt að þessi fundur skuli hafa verið haldinn. Hann bendir til þess að viðskiptaráðherra ætli að efna til samráðs um ráðstafanir gegn verðhækkunum.
Björgvin Guðmundsson
ASÍ og neytendur á fundi í viðskiptaráðuneytinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.