Krían kom á sumardaginn fyrsta

Fyrsta kría ársins sást við Ósland á Höfn í Hornafirði í gær, sumardaginn fyrsta. Björn Gísli Arnarson fuglaáhugamaður segir að krían hafi verið ein á ferð en á næstu dögum má eiga von á stórum hópum af kríum.

Það er ekki óalgengt að fyrstu kríurnar sjáist í nágrenni Hafnar. Björn segir kríuna á eðlilegum tíma í ár en hún komi núna fyrr en á árum áður þegar oft varð vart við fyrstu kríurnar í 1. maí-skrúðgöngum bæjarbúa á Höfn.

Gott veður tók á móti kríunni, um 11 gráðu hiti og hæglætisveður, og Björn segir það óneitanlega til marks um fyrir bæjarmenn að vor sé í lofti þegar fer að heyrast í kríunni.

Þetta er ánægjulegur sumarboði. Krían hefur lengi verið tengd við sumarkomuna hér á landi.Það léttist nú brúnin á landanum eftir því sem meira birtir og  sól og hiti láta meira á sér kræla. Vonandi verðu sumarið gott.

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Krían kom með sumrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband