Gefa mat á Lækjartorgi

Nýstofnuð samtök sem nefna sig Matur ekki einkaþotur hyggjast gefa fátækum, heimilislausum og þeim sem vilja þiggja mat á Lækjartorgi klukkan eitt næstu laugardaga. Samtökin eru byggð á bandarískri fyrirmynd sem nefnist Food not bombs á ensku.

Matinn fá samtökin gefins hjá ýmsum stuðningsaðilum, verslunum og öðrum sem ekki vilja láta nafns síns getið. Einungis er boðið upp á grænmetisfæði til að allir geti notið matarins.

„Þetta er alþjóðleg hreyfing fólks sem pirrar sig á því hvað lítið sé gert í málefnum fátækra og heimilislausra en nægt fé er til fyrir stríðsrekstri," sagði Snorri Jónsson einn af aðstandendum hreyfingarinnar á Íslandi.

„Til að byrja með ætlum við að kalla samtökin Matur ekki einkaþotur þar sem það er ekki mikil tenging við sprengjur hér á Íslandi," sagði Snorri að lokum.

Fyrir eru tvenn samtök sem gefa fátækum mat og fleira, þ.e.  Mæðrastyrksmnefnd og Fjölskylduhjálpin.Mikil eftirspurn hefur verið eftir aðstoð þessara samtaka. Það  að nú skuli þriðju samtökin stofnuð í sama tilgangi bendir til þess að mikil þörf sé  fyrir slíka  aðstoð og mikil fátækt í þjóðfélaginiu.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Matur ekki einkaþotur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband