Fimmtudagur, 8. maí 2008
Ólafur F.kominn í spillinguna!
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hefur ráðið Jakob Frímann Magnússon í hátt launað starf á borgarskrifstofunum. Réði Ólafur Jakob Frímann án auglýsingar og á hærri launum en gengur og gerist í Ráðhúsinu.Mun Jabob Frímann hafa í kringum 900 þús. á mánuði þegar allt er talið.Hann heyrir beint undir borgarstjóra.Áður hafði Ólafur borgarstjóri ráðið sér pólitískan aðstoðarmann.Er líkast því sem hann sé að ráða sér annan slíkan. Ólafur hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir ráðninguna,þar eð staðan var ekki auglýst og ekki staðið rétt að málum. Þykir þetta lykta af spillingu hjá Ólafi.- Jakob Frímann á að sinna miðborgarmálum.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:01 | Facebook
Athugasemdir
Og hver kaus JFM til trúnaðarstarf í pólítískum nefndum?
Hildur (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 10:19
Jakob Fímann styrkir Ólaf Friðrik sem borgarstjóra!
Hallur Magnússon, 8.5.2008 kl. 11:15
Það er djöfuls fnykur af þessu máli.
365, 8.5.2008 kl. 13:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.