OECD:Einkaneysla dregst saman,hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi stóreykst

Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) spáir því að einkaneysla dragist saman um 0,9% á Íslandi í ár en 4% á næsta ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá stofnuninni. Þar kemur fram að verðbólga verði 9,8% í ár en 6% á því næsta. Skýrslan var kynnt á blaðamannafundi í París í dag.

 

Samkvæmt skýrslu OECD mun hagvöxtur dragast saman og verða 0,4% á þessu ári og neikvæður um 0,4% á næsta ári. Samhliða mun atvinnuleysi aukast mikið að mati OECD og verða 5,7% á næsta ári.

Í skýrslunni er því spáð að hagvöxtur muni minnka hratt á Íslandi og atvinnuleysi aukast umtalsvert. Í kjölfar langs vaxtahækkunarferils hjá Seðlabanka Íslands sé útlit fyrir að verðbólga taki að minnka í ár.

Fram kemur í skýrslunni að peningamálastefna Seðlabankans eigi áfram að vera hörð til að tryggja lækkun á gengi krónunnar hafi ekki háa verðbólgu í langan tíma í för með sér.

Í skýrslunni er fjallað um gjaldeyrisskiptasamninga seðlabankans við norrænu seðlabankana og með því hafi gjaldeyrisstaða seðlabankans verið tryggð.

Vegna óöruggs ástands á alþjóðlegum fjármálamörkuðum þá sé það skynsamlegt af stjórnvöldum að auka gjaldeyrisforðann enn frekar og fylgjast náið með starfsemi bankanna með auknu bankaeftirliti.

Segir í skýrslunni að íslenskt efnahagslíf sé nátengt alþjóðlegum mörkuðum og þeirri niðursveiflu sem nú ríki á fjármálamörkuðum. Fjallað er um útrás viðskiptabankanna þriggja og þrátt fyrir að þeir eigi lítið undir hvað varðar ótrygg veðlán (sub prime loans) í Bandaríkjunum og að eiginfjárhlutfall þeirra sé gott þá séu auknar áhyggjur af aðgengi þeirra að lánsfé. Skuldatryggingaálag þeirra hafi hækkað verulega, hafi verið um 1.000 punktar í mars en sé nú 600 punktar, og því dýrt fyrir þá að fjármagna sig erlendis.

Þessi spá OECD kemur ekki á óvart. Þó er spá OECD um atvinnuleysi nokkuð há eða 5,7% á næsta ári. Það eru mikil umskipti. En landinn verður að búa sig undir breytingar á næstunni.Það er skynsamlegt að fara varlega í allri fjárfestingu og draga úr eyðslu eftir því sem það er mögulegt. Þeir sem hafa farið í 2 utanlandsferðir á ári ættu að láta eina nægja og ef til vill þarf einhvers staðar að leggja bíl eða  skipta í minni bíl.Aðalatriðið er að berja ekki hausnum við steininn.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Samdrætti spáð í einkaneyslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband