Laugardagur, 7. júní 2008
Jóhanna hjálpar þolendum náttúruhamfara
- .
Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, setti í gær að tillögu stjórnar Íbúðalánasjóðs reglur til að aðstoða þolendur náttúruhamfara með frestun eða skuldbreytingu á lánum sjóðsins.
Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneyti segir að reglurnar hafi verið settar í kjölfar Suðurlandsskjálftans til að styðja við bakið á þeim sem urðu fyrir tjóni af völdum hans og koma í veg fyrir greiðsluerfiðleika þeirra. Skilyrði fyrir heimildinni er að tjón á íbúð viðkomandi af völdum náttúruhamfara hafi verið tilkynnt til vátryggjanda eða Viðlagatryggingar Íslands.
Þá kemur fram að umsóknir skuli senda Íbúðalánasjóði sem tekur ákvörðun um fyrirgreiðslu á grundvelli reglugerðarinnar og afgreiðir umsóknir. Með umsókn skal fylgja staðfesting frá vátryggingafélagi eða viðlagatryggingu um að tjón umsækjanda á íbúð hans hafi verið tilkynnt.
Íbúðalánasjóður veitir þeim sem ráðast í viðgerðir eða endurbyggingu íbúðarhúsnæðis heimild til að fá tryggingarfé til ráðstöfunar gegn bankaábyrgð fyrir fjárhæð áhvílandi lána sjóðsins meðan á viðgerð eða endurbyggingu stendur. Jafnframt getur Íbúðalánasjóður heimilað eigendum íbúða sem hafa skemmst að flytja lán sjóðsins yfir á aðra íbúð í sinni eigu samkvæmt reglum sjóðsins um lánveitingar.
Jóhanna á þakkir skilið fyrir að bregðast svo fljótt við í máli þessu sem raun ber vitni. Þetta getur skipt sköpum fyrir marga þolendur náttúruhamfara.
Aðstoð við þolendur náttúruhamfara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:07 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.