Mánudagur, 16. júní 2008
Spara má útgerðinni stórfé
Marorka hefur undanfarin ár verið með hugbúnaðarkerfi í þróun sem ætlað er að stjórna betur olíubrennslu og orkunotkun um borð í skipum, hvort sem það eru fiskiskip, flutningaskip eða skemmtiferðaskip. Kerfið heldur einnig utan um alla umhverfisþætti skipanna. Á tímum hækkandi olíuverðs hefur eftirspurn eftir þessum búnaði stóraukist en kerfið getur sparað olíunotkun um 3-10%, allt eftir því um hvaða skipategund er að ræða. Sparnaður fyrir skipaeigendur getur skipt mörgum milljónum króna.
Dr. Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Marorku, sagðist í samtali við Morgunblaðið, vera stoltur og ánægður með tilnefninguna, hún væri mikil viðurkenning fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess, en þeir eru alls 20 hér á landi. Að auki er Marorka með dótturfélög í Noregi og Danmörku um rekstur söluskrifstofa. Á skömmum tíma hefur fyrirtækið vaxið hratt, en Jón Ágúst byrjaði einn að vinna í þessari hugmynd og fyrir aðeins sex árum voru starfsmenn Marorku þrír talsins. Fyrstu árin var reksturinn erfiður, eins og oft vill verða hjá sprotafyrirtækjum, en nú horfa Marorkumenn bjartir fram á veginn.
Að sögn Jóns er Marorka farin að starfa með mörgum af stærstu útgerðum Norðurlanda, en alls hafa hátt í 40 kerfi verið seld um allan heim á síðustu árum, þó aðallega á Norðurlöndum. Kerfið er þróað og framleitt hér á landi og því algjörlega um íslenskt hugvit að ræða. Jón Ágúst segir sambærilegan búnað ekki í framleiðslu annars staðar.(mbl.is)
Á tímum hækkandi eldsneytisverðs skiptir miklu máli að leyta allra leiða til þess að spara í eldneytiskostnaði. Marorka getur sparað skipum stórfé með orkustjórnunarkerfi en auk þess má spara mikið með því að skipta um eldsneyti og fara yfir í svartolíu.
Björgvin Guðmundsson
Sparar útgerðum milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:54 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.