Föstudagur, 1. ágúst 2008
Hreiðar Már hafði 62 millj. í fyrra!
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, þénaði rétt tæpar 62 milljónir króna á mánuði í fyrra samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í morgun. Hreiðar Már ber höfuð og herðar yfir aðra Íslendinga.
Haft skal í huga að þótt skattskyldar tekjur Hreiðars Más hafi á síðasta numið um 740 milljónum þá er ekki nema hluti af því laun hans fyrir að genga forstjórastarfi hjá Kaupþingi. Samkvæmt ársreikningi bankans fyrir árið 2007 fékk Hreiðar um 110 milljónir í laun á því ári. Afgangurinn er skattskyldur hagnaður af kaupréttarsamningum sem Hreiðar Már hefur fengið í starfi sínu.
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi stjórnarformaður REI og fyrrverandi forstjóri Glitnis, var með rúmar 43 milljónir á mánuði í tekjur á síðasta ári. Bjarni hætti sem forstjóri hjá Glitni á árinu og fékk feitan starfslokasamning.
Þessar tekjur Hreiðars Más eru úr takti við allar eðlilegar tekjur og laun í þjóðfélaginu. Þó meirihluti af þessari upphæð sé hagnaður af kaupréttarsamningum eru laun einnig mjög há eða 110 millj. á einu ári.Ekki kemur til greina,að ríkið veiti bönkum sem þannig bruðla með fjármuni,neina aðstoð.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:14 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.