Fimmtudagur, 7. ágúst 2008
Samfylkingin með 48% í Reykjavík
Flokkur borgarstjórans í Reykjavík, Ólafs F. Magnússonar, geldur afhroð í nýrri skoðanakönnun um fylgi flokka í Reykjavík, sem Capacent gerði fyrir Stöð 2.
Samkvæmt könnuninni fær flokkur hans aðeins 1,8 prósenta fylgi í Reykjavík. Samfylkingin nærri tvöfaldar fylgi sitt miðað við síðustu kosningar ef marka má könnunina og fær tæplega 48 prósenta fylgi.
Capacent spurði: Ef kosið yrði í dag til borgarstjórnar hvaða lista myndir þú kjósa/eða líklegast kjósa ?
47,8 prósent sögðust myndu kjósa Samfylkinguna.
26,7 prósent Sjálfstæðisflokkinn
21,7 prósent Vinstri græna
2,1 prósent Framsóknarflokkinn
og 1,8 prósent Frjálslynda og óháða.
Ef litið er til síðustu Borgarstjórnarkosninga þá er ljóst að fylgið hefur breyst mikið hjá flokkunum.
Þá kusu:
27,3 prósent Samfylkinguna
42,9 prósent Sjálfstæðisflokkinn
13,5 prósent Vinstri græna
6,3 prósent Framsóknarflokkinn
og 10,1 prósent Frjálslynda og óháða.
Borgarstjórinn í Reykjavík hafði samtals 6.527 atvæði á bakvið sig eftir síðustu kosningar en samkvæmt könnun Capacent hefur hann nú 1.188. Til viðmiðunar má geta þess að um tólf hundruð manns búa við Vesturberg í Reykjavík.
Capacent gerði könnunina dagana 17. júlí til 6. ágúst. Í úrtakinu voru 758 Reykvíkingar á aldrinum 16 til 75 ára. Svarhlutfall var 65,5 prósent. (mbl.is)
Fylgi borgarstjóra hefur hrunið og fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur ekkert aukist við það að Hanna Birna tók við af Vilhjálmi.Ljóst er,að Reykvíkingar eru óánægðir með stjórn Ólafs F. og íhaldsins á borginni.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.