Mánudagur, 22. september 2008
Erlendur aðili kaupir hlut í Kaupþingi fyrir 25,6 milljarða
Sjeik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani hefur keypt 5,01% hlut í Kaupþingi. Er það fjárfestingafélag í hans eigu sem kaupir hlutinn, alls 37,1 milljón bréfa á genginu 690 krónur á hlut. Kaupverðið er því 25.599 milljónir króna. Með kaupunum verður hann þriðji stærsti hluthafinn í bankanum. Mohammed tilheyrir konungsfjölskyldunni í Qatar sem hefur verið við völd í landinu frá níundu öld, að því er kemur fram á vef Kaupþings.
Félagið sem kaupir í Kaupþingi heitir Q Iceland Finance ehf. og er það að fullu í eigu Mohammed Bin Khalifa Al-Thania. Er haft eftir honum í tilkynningu að fylgst hafi verið náið með Kaupþingi í einhvern tíma og þeir telji Kaupþing góðan fjárfestingakost. Staða bankans sé sterk og að stjórnendateymi bankans og stefna hans hafi staðið sig vel í því ölduróti sem einkennir fjármálamarkaði nú. Litið sé á fjárfestinguna í Kaupþingi sem langtíma fjárfestingu.
Þetta er ekki fyrsta fjárfesting Mohammed Bin Khalifa Al-Thania í íslensku félagi en í sumar keypti fjárfestingafélag í hans eigu 12,6% hlut í Alfesca. Þegar tilkynnt var um þau kaup kom fram að sjeikinn, sem er bróðir emírsins í Katar, sé vinur Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Alfesca en þeir hafi stundað veiðar saman í Afríku.
Annar stærsti hluthafinn í Kaupþingi er Egla með 9,88% hlut. Ólafur Ólafsson er einn aðaleigandi Eglu, félags sem var stofnað í kringum sölu ríkisins á Búnaðarbankanum.(mbl.is)
Þessi erlenda fjárfesting í bankanum mun styrkja bankann og væntanlega hækka hlutabréf bankans. Þetta sýnir að erlendir fjárfestar hafa trú á bankanum.Þetta er mjög mikils virði einmitt nú þegar bankar og fjármálastofnanir eiga í erfiðleikum,einkum að því er varðar að fá erlent lánsfé.
Björgvin Guðmundsson
Sjeik kaupir 5% í Kaupþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.