Mánudagur, 22. september 2008
Unga fólkið á erfitt með að fá húsnæði
Í fyrrnefndri könnun kom í ljós að tæplega 60% svarenda í hópi unga fólksins (18-35 ára) segja að fjárhagsvandamál og mikil útgjöld séu helsta vandamálið. Fer vart á milli mála að stór hluti þessa hóps hefur þar í huga fjárhagsvanda og útgjöld vegna hás húsnæðiskostnaðar, en erfiðleikarnir sem blasa við ungu fólki, ekki síst barnafólki, blasa við á fleiri sviðum. Í drögunum sem ASÍ hefur unnið er einnig sagt frá því að rúmlega helmingur fólks á aldrinum 18-35 ára telur að greiðsla fyrir heilbrigðisþjónustu dragi úr aðsókn ungs fólks að þjónustunni.
Það er ekki síst kostnaður vegna nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga s.s. vegna tannlækninga, lyfja og sjón- og heyrnartækja sem getur verið umtalsverður. Þá hefur kostnaður barnafjölskyldna í grunnskólanum aukist mikið og er staðan nú víða sú að kostnaður er svipaður fyrir leikskólapláss og mat og síðdegisgæslu í neðstu bekkjum grunnskólans, segir í umfjölluninni.(mbl.is)
Það er vel til fallið að ASÍ skuli ætla að taka sérstaklega fyrir stöðu ungs fólks í samfélaginu á ársfundi sínum í næsta mánuði.Fyrrnefnd könnun var gerð fyrri hluta sumar. Má reikna með ástandið í húsnæðismálum ungs fólks hafi enn versnað síðan þá.
Björgvin Guðmundsson
Til baka
Kreppir að fjárhag unga fólksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.