Mánudagur, 6. október 2008
Frv.um fjármálamarkað samþykkt í nótt
Búist er við að frumvarp um aðgerðir á fjármálamarkaði verði samþykkt í kvöld eða nótt. Össur Skarphéðinsson iðnaðaráðherra segir um framhaldið að allir viti örlög Glitnis og Landsbankinn hafi sætt áhlaupi í Bretlandi. Kaupþing hafi svo fengið fyrirgreiðslu út á mjög trygg veð. Ríkisstjórnin sé hinsvegar að tryggja með sínum aðgerðum að bankar þurfi ekki að loka og viðskiptavinir geti sótt þangað þjónustu á morgun sem og aðra daga. Sparifé þeirra sé tryggt og Íbúðalánasjóður muni hlaupa undir bagga og endurfjármagna lán þeirra banka sem kunni að lenda í erfiðleikum.
Össur Skarphéðinsson segir að ríkisvaldinu beri skylda til að greiða fyrir fjármálastofnunum til að vernda hagsmuni almennings en því beri engin skylda til að hætta stórkostlegum upphæðum upp á von og óvon. Það verði því að vega og metra viðbrögð vel. Það hafi komið kröfur úr fjármálageiranum að ríkisvaldið liðsinni mönnum með upphæðir sem séu fimm eða sjöfalt meira hlutfallslega en Bandaríkjamenn séu að gera. Það komi ekki til greina að hneppa ófæddar kynslóðir í gríðarlega skuldafjötra. Ef innlánsstofnanir lenda í erfiðleikum þá taka menn þann part af bönkunum sem véli með innlán íslendinga og stofni um það sérstakt félag.(mbl.is)
Það hriktir í ísl fjármálamarkaði en væntanlega tekst ríkisstjórninni að tryggja eðlilega bankastarfsemi.Það er alveg ljóst,að bankarnir hafa farið óvarlega í skuldsetningu erlendis. Það þarf að kanna það mál allt síðar.
Björgvin Guðmundsson
Verndum hagsmuni almennings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:01 | Facebook
Athugasemdir
Vonandi verður þetta upplýst...seinna!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 6.10.2008 kl. 23:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.