Föstudagur, 17. október 2008
Tilboði lífeyrissjóða í Kaupþing hafnað
Tilboði lífeyrissjóðanna í Kaupþing hefur verið hafnað en ekki liggur fyrir hvort viðræðum verður haldið áfram síðar. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að bankinn fari því í sama feril og hinir bankarnir en stofnað verður félag um hann í eigu ríkisins. Ný bankastjórn mun þá taka afstöðu til þess hvort rætt verður frekar við lífeyrissjóðina. Aðspurður sagðist ráðherrann telja að tilboð lífeyrissjóðanna hafi ekki verið talið fullnægjandi.
Vísbendingar hafa komið fram um að staða í sjóðum Landsbankans sé betri en talið var, segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Hann sagði von á tilkynningu frá skilanefndum bankanna eða bönkunum þetta.
Það sé von til þess að hægt sé að bæta einstaklingum, líknarfélögum og sveitarfélögum að talsverðu leyti þann skaða sem leit út fyrir að hefði orðið á peningamarkaðssjóðum en fólk eigi von í því sem eftir standi.(mbl.is)
Ég harma það,að lífeyrissjóðirnir og skilanefnd Kaupþings skyldu ekki ná saman. Það hefði verið æskilegt,að lífeyrissjóðirnir eignuðust banka.En sennilega hafa lífeyrissjóðirnir boðið of lágt. Ef til vill gefst lífeyrissjóðunum tækifæri síðar til þess að koma að bönkunum.Lífeyrissjóðirnir höfðu einnig í hyggju að tryggja hagsmuni sína hjá Kaupþingi en þeir áttu þar mikið hlutafé. Sennilega er það glatað.
Björgvin Guðmundsson
Tilboði lífeyrissjóða hafnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.