Mánudagur, 20. október 2008
Verður kosið í vetur eða vor?
Björn Bjarnason ráðherra mun hafa sagt í Mannamáli á Stöð 2 í gærkveldi,að ef til vill færu fram þingkosningar næsta vetur eða næsta vor. Þessi ummæli Björns koma ekki á óvart. Það eru það mikil umbrot í stjórnmálum og efnahagsmálum hér á landi,að óvíst er að stjórnin sitji veturinn. Auk þess getur verið að stjórnin vilji freista þess að fá endurnýjað umboð sitt vegna ástandsins í landinu.
Ef ríkisstjórnin skerðir kjör fólksins í landinu verulega vegna ástandsins í efnahagsmálum getur orðið mikil ólga.Það er vitað,að atvinnuleysi mun aukast mikið en ef við bætist lífskjaraskerðing til viðbótur gengishruni krónunnasr,.t.d með skattahækkunum eða skerðingu lífeyrisréttinda verður ólgan meiri en svo,að stjórnin standist það.Auk þess er það mikil krafa fólksins að stjórn og Seðlabanki axli ábyrgð af því hvernig komið er.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.