Þriðjudagur, 11. nóvember 2008
Jóhanna vill aðgerðaráætlun á næstu dögum
Jóhanna Sigurðardóttir,ráðherra,sagði í viðtali við sjónvarpið í gær,að ríkisstjórnin þyrfti að leggja fram aðgerðaráætlun strax á næstu dðgum. Það þyldi enga bið.Hún gaf svipaða yfirlýsingu fyrir nokkrum dögum.Þá sagði hún,að endurskoða þyrfti stjórnarsáttmálann og endurmeta afstöðuna til Evrópusambandsins og leggja fram nýja stefnu í peningamálum.
Þegar Jóhanna talar um aðgerðaráætlun mun hún eiga við aðgerðir í þágu heimila og fyrirtækja,sem þola enga bið. En einnig á hún við nýja stefnu í peningamálum og í Evrópumálum.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.