Olli þjóðnýting Glitnis bankahruninu?

Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu sagði í morgun,að  sú ráðstöfun Seðlabankans að þjóðnýta Glitni ( kaupa 75% hlutafjár í bankanum) hafi  verið búin að vera í undirbúningi í nokkurn tíma og höfuðtilgangurinn hafi verið sá að skaða Jón Ásgeir Jóhannesson,sem var stór hluthafi í Glitni.Með þjóðnýtingu Glitnis tapaði Jón Ágeir öllu hlutafé sínu í bankanum.(mörgum tugum milljarða)En Arnþrúður bætti við: Það,sem Seðlabankinn sá ekki fyrir var það,að þjóðnýting Glitnis olli hruni Landsbankans og Kaupþings. Það var ekki meiningin.Það átti aðeins  að klekkja á Jóni Ásgeiri og Baugi.

Þorsteinn Már stjórnarformaður Glitnis fór á fund Seðlabankans og óskaði eftir láni fyrir Glitni ( ca. 20 milljörðum) til þess að greiða af lán hjá Landesbank í Þýskalandi.Þýski bankinn hafði áður tekið vel í að framlengja lán,sem nam þessari upphæð en hætti við það þar eð Seðlabankinn fékk lán hjá bankanum sem nam svipaðri fjárhæð. Vísaði þýski bankinn Glitni á Seðlabankann. Þorsteinn Már heyrði ekkert frá Seðlabankanum í 1-2 daga eftir að hann bar upp erindi sitt. En síðan frétti hann skyndilega frá Seðlabankanum að ákveðið hefði verið að þjóðnýta Glitni!Þetta var hið furðulegasta mál

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband