Reynt að hræða fólk með miklum skuldum!

Vísir.is skrifar eftirfarandi í dag:

Íslendingar verða skuldsettasta þjóð veraldar í vikulok gangi stjórnvöldum allt að óskum. Upphæð lánanna sem sóst er eftir hljóðar upp á ríflega 1.400 milljarða króna. Það þýðir að vegna bankahrunsins tekur hver Íslendingur á sig fjórar og hálfa milljón í skuld.

Nú er ljóst að íslenska þjóðin mun greiða þær upphæðir sem lágu inn á Icesave reikningum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, að hámarki um 20 þúsund evrur á hvern reikning. Upphæðin sem nefnd hefur verið í því sambandi eru um 600 milljarðar króna.

Við eigum ekki fyrir þeim skuldum og því verður næsta skref að reyna að komast að samkomulagi við Breta og Hollendinga, jafnvel fá þá til að lána Íslendingum fyrir þeim.

Algerlega virðist á huldu hvort eða hversu skammt eignir Landsbankans hrökkva upp í þessa upphæð og skiptir í dag ekki öllu máli. Það mun taka fleiri ár að koma eignunum í verð og lán verður tekið fyrir Icesave milljörðunum.

Það að íslensk stjórnvöld hafa nú viðurkennt að þjóðinni beri að standa við Icesave skuldbindingar gerir það að verkum að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun að öllum líkindum taka umsókn Íslands um 2,1 milljarða dollara lán fyrir í vikunni. Það gera um 280 milljarða króna. En það þarf meira. Vonast er eftir um 4 milljörðum dollara frá Norðulöndunum og Evrópusambandinu.

Þessi lánapakki hljóðar upp á 800 milljarða íslenskra króna.

Lán vegna Icesave skuldbindinga er metið á 600 milljarða íslenkra króna.
Þetta eru um 1.400 milljarðar króna.

Það þýðir á mannamáli að hver Íslendingur, kornabörn og ellilífeyrisþegar meðtaldir, tekur á sig fjóra og hálfa milljón, í skuld, vegna bankahrunsins.

Ég gagnrýni þessa útreikninga og aðferðarfræði af 2 ástæðum: 1) Landsbankinn á eignir fyrir innstæðum á icesave Ef.þær rýrna eitthvað  og duga ekki alveg greiðir íslenska rikið mismuninn.Hvað sá mismunur verður mikill veit enginn. Ef til vill verður enginn mismunur.Ef til vill verður hann 100 milljarðar en örugglega ekki meiri.Lánið hjá IMF og fleiri ríkjum er  eins og yfirdráttarlán.Það verður notaður hluti af því eftir þörfum en ekki allt lánið.Það verður gjaldeyrisvarasjóður.

 

2lÉg tel ekki rétt að vera að hræða  fólk með því að birta háar tölur um hugsanlegar skuldir. Það má nánast reikna hvað sem er.

Fólk hefur nægar áhyggjur þó ekki sé verið að hræða það sem vangaveltum um hugsanlegar  erlendar skuldir.

 

Björgvin Guðmundsson


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eymundur Ingimundarson

Fjórar og hálf milljón á mann... er þetta ekki sirka einn Landcruiser (200) eða Range Rover á fjölskyldu? Menn hafa nú ekkert vrið að víla það fyrir sér að taka einn slíkan á myntkörfuláni á undanförnum árum

Eymundur Ingimundarson, 17.11.2008 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband