Davið vill erlenda rannsókn á Seðlabankanum

Davíð Oddsson seðlabankastjóri krefst þess að fram fari ítarleg rannsókn á vegum erlendra aðila á störfum Seðlabankans í aðdraganda bankahrunsins. Komi í ljós að mistök hafi verið gerð þurfi ekki að reka neinn, menn muni segja af sér.

Þetta kom fram í ræðu Davíðs á árlegum morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands sem að þessu sinni bar yfirskriftina Fjármálakreppan - er lausn í sjónmáli? Davíð fór yfir það í ræðu sinni að Seðlabankinn hefði ítrekað varað við í hvað stefndi, bæði út á við og inn á við, en bankarnir hefðu ætíð svarað því að staðað þeirra væri sterk. Þá sagði seðlabankastjóri enn fremur að fjölmiðlar hefðu lítið gert úr varnaðarorðum Seðlabankans. Áróðursmaskína hefði verið notuð grímulaust eins og verðlaunasjónvarpsmaðurinn Egill Helgason hefði bent á.(visir.is)

Það eru stórtíðindi,að  Davíð Oddsson skuli óska erlendrar rannsóknar á Seðlabankanum og segja,að bankastjórn Seðlabankans muni segja af sér,ef bankastjórnin hafi gert mistök.Fróðlegt verður að sjá hvernig ríkisstjórnin bregst við þessari ósk Davíðs.

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óneitanlega sérstakt hjá Davíð að kalla eftir rannsókn núna. Af hverju ekki fyrir 4 vikum ?

hilmar (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 11:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband