Föstudagur, 21. nóvember 2008
Seðlabankinn stýrir ráðstöfun IMF lánsins
Seðlabankinn mun hafa fullkomna stjórn á því hvernig fjármagninu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF) verður ráðstafað, innan þeirra takmarkana sem sjóðurinn sjálfur setur. Orsakast það af þeirri lagaumgjörð sem Seðlabankinn starfar eftir og hlutverki hans við stjórn peningamála.
Ein jákvæð tíðindi fyrir íslenskan almenning í kjölfar IMF-láns er að liðkað verður fyrir viðskipti með gjaldeyri. Það má búast við eðlilegri miðlun gjaldeyris í bönkunum til almennings. Það sem fyrst og fremst verður temprað eru stærri fjármagnsflutningar, segir Gylfi Magnússon, dósent við viðskipta- og hagfræðideild HÍ.
Lánið frá IMF nemur 2,1 milljarði dollara. Á grundvelli samkomulags íslenska ríkisins og IMF verða 827 milljónir dollara til taks nú þegar og afgangurinn í átta jöfnum millifærslum að fjárhæð 155 milljónir dollara hver. Lánið, rúmlega 2,1 milljarður dollara frá IMF og um þrír milljarðar dollara frá teymi þjóða sem ákváðu að lána, fer langleiðina með að mæta þörf ríkisins í endurreisn hagkerfisins og er liður í endurheimtingu trúverðugleika.(mbl.is)
Þess verður að vænta ,að Seðlabankanum farist þetta verk vel úr hendi þrátt fyrir deilur um bankann.
Bj0rgvin Guðmundsson
´
Til baka
Seðlabankinn stjórnar ráðstöfun IMF lánsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.