Sunnudagur, 23. nóvember 2008
31,6% styður stjórnina!
Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 31,6% landsmanna samkvæmt könnun, sem Fréttablaðið birtir í dag. 68,4% segjast ekki styðja stjórnina. Hefur fylgi við ríkisstjórnina minnkað um 10 prósentur frá því blaðið gerði sambærilega könnun í október.
Blaðið hefur m.a. eftir Bjarna Benediktssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks, að aðgerðaáætlanir fyrir heimilin og fyrirtækin, séu í smíðum. Þegar sú mynd verði dregin skýrar muni viðhorfin breytast. Haft er eftir Valgerði Sverrisdóttir, formanni Framsóknarflokks, að þetta sé afleit útkoma fyrir ríkisstjórnina enda hafi stjórnarandstaðan flutt vantrauststillögu á Alþingi.
Mestur er stuðningur við stjórnina meðal Sjálfstæðismanna, 88,2%, rúm 50,4% meðal Samfylkingarfólks, 21,1% meðal þeirra sem ekki gefa upp stuðning við flokk, 8,3% meðal framsóknarfólks og 3,8% meðal stuðningsmanna VG.
Hringt var í 800 manns laugardaginn 22. nóvember og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var: Hvaða flokk myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga nú? og tóku 49,9 prósent afstöðu, 29,4% vera óákveðin, 15% segjast myndu skila auðu. Einnig var spurt: Styður þú núverandi ríkisstjórn? og tóku 88,3 prósent afstöðu til spurningarinnar. (mbl.is)
Minnkandi stuðningur við stjórnina sýnir,að ekki verður komist hjá kosningum á næsta ári.,Spurning
in er aðeins hvort kosið verður næsta vor eða næsta haust.
Björgvin Guðmundsson
aka
31,6% stuðningur við stjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:08 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.