Miðvikudagur, 10. desember 2008
Forstjórar lífeyrisssjóðanna hafa tekið þátt í launaruglinu.Sá hæsti með 2,5 millj.á mán.
Gildi lífeyrissjóður hefur ákveðið 10% lækkun launa hjá stjórnarmönnum sjóðsins og æðstu stjórnendum frá næstu áramótum. Samkvæmt upplýsingum blaðsins áforma stjórnir nokkurra helstu lífeyrissjóða einnig launalækkun en tölur hafa ekki verið ákveðnar. Forstjórar stærstu lífeyrissjóða landsins hafa verið með 20-30 milljónir króna í árslaun. Hæstu launin fékk Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, tæpar 30 milljónir króna, eða um 2,5 milljónir á mánuði á síðasta ári. Framkvæmdastjóri Gildis, Árni Guðmundsson, var með 21,5 milljónir króna en 10% lækkun á því nemur rúmum 2 milljónum. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hafa laun stjórnenda ekki verið tengd við árangur sjóðanna en raunávöxtun þeirra á síðasta ári var misgóð. Hún var neikvæð um 0,8% hjá stærsta sjóðnum, LSR, og frá 0% til 2,4% hjá fjórum stærstu sjóðum þar á eftir.(mbl.is)
Það er skammarlegt,að forstjórar stærstu lífeyrissjóðanna skuli vera með margföld laun ráðherra í laun á mánuði.Hvers vegna eru ekki þessir menn með 500 þús. á mánuði? Er það ekki nóg,þegar verkamenn hafa 150 þúsund og þeir sem borga í lífeyrissjóðina og halda kerfinu upp þeir hafa ekki nema 150-300 þús. á mánuði í laun.Þetta er til skammar og það dugar ekki að lækka launin um 10%.Það verður að skera þetta rösklega nður.
Björgvin Guðmundsson
Laun stjórnenda helstu lífeyrissjóða munu lækka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:48 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.