Sunnudagur, 25. janúar 2009
Bjarni Benediktsson nýtur mests stuðnings sem formaður
Fjórir þingmenn eru einkum orðaðir við formennsku í Sjálfstæðisflokknum, en það eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður, Bjarni Benediktsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Kristján Þór Júlíusson.
Rætt er við 22 landsfundarfulltrúa um allt land í blaðinu í sunnudagsblaði Morgunblaðsins og nýtur Bjarni Benediktsson mests stuðnings meðal þeirra. Þá lýsa þrír þingmenn yfir stuðningi við Bjarna, þau Birgir Ármannsson, Ólöf Nordal og Sigurður Kári Kristjánsson.
Aðrir þingmenn og ráðherrar sem rætt var við gáfu ekki upp afstöðu sína og útilokuðu fæstir þeirra að gefa kost á sér til forystustarfa fyrir flokkinn á landsfundinum.
Miðstjórn hefur mælst til þess að kjördæmisráð raði á framboðslista fyrir landsfund, hvort sem það verður með prófkjöri eða uppstillingu. Það má því ljóst vera að niðurstöður úr prófkjörum geta haft áhrif á formannskjör.
.
Þó nokkrir höfðu á orði að þeir væru slegnir eftir tíðindin af veikindum núverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, Geirs H. Haarde. Ég verð að segja fyrir mína parta að mér var mjög brugðið að heyra tíðindin, segir Ásbjörn Óttarsson í Snæfellsbæ. Hugur minn er hjá Geir H. Haarde og fjölskyldu hans þessa stundina. Og eins og hann réttilega benti á sjálfur er til fullt af góðu fólki sem getur tekið við keflinu - ég kvíði því ekki.
Unni Brá Konráðsdóttur á Hvolsvelli finnst margir koma til greina í forystu flokksins og hún segir Bjarna Benediktsson augljósan kandídat. Ég veit ekki hvað Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gerir. Illugi Gunnarsson kemur til greina, Árni Sigfússon og Kristján Þór Júlíusson.(mbl.is)
Ef landsfundur hefði verið haldinn í lok janúar hefði stefna flokksins í Evrópumálum legið fyrir upp úr mánaðamótum. Nú hefur landsfundi verið frestað þar til í lok mars og því verður stefnan í Evrópumálum ekk klár fyrr en eftir fundinn í lok mars.Vegna leiðtogaskipta í flokknum má einnig búast við að enginn af forustumönnum flokksins vilji kveða upp úr um Ísland og ESB fyrr en stefnan hefur verið ákveðin á landsfundi.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.