Fimmtudagur, 5. febrúar 2009
Ásmundur Stefánsson bankastjóri Landsbankans
Bankaaráð Landsbankans, NBI hf., ákvað í dag að fresta að auglýsa stöðu bankastjóra þar til í haust. Elín Sigfúsdóttir, núverandi bankastjóri, hefur gert bankaráðinu grein fyrir því að hún hyggist standa við fyrri ákvörðun um að láta af störfum um næstu mánaðamót eins og hún hafði áður greint frá. Bankaráð hefur falið Ásmundi Stefánssyni, núverandi formanni bankaráðs, að taka við hlutverki bankastjóra þar til staðan verður auglýst og í hana ráðið á haustmánuðum.
Haukur Halldórsson, varaformaður bankaráð,s mun taka við formennsku þess og varamaður Ásmundar, Ása Richardsdóttir, tekur sæti í bankaráðinu.
Meginástæða frestunarinnar er sú tímabundna óvissa sem um þessar mundir ríkir í rekstrar- og viðskiptaumhverfi bankans sem torveldar framtíðarsýn og um leið markmiðssetningu til lengri tíma litið. Af hálfu bankaráðsins verður þeirri vinnu hraðað eins og auðið er við þessar aðstæður," segir í yfirlýsingu bankaráðs NBI.(mbl.is)

Ásmundur Stéfánsson er sjálfsagt vel hæfur til þess að vera bankastjóri Landsbankans.Hann er hagfræðimenntaður og hefur mikla reynslu af bankastörfum.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.