Laugardagur, 7. mars 2009
Fleiri vilja Ingibjörgu Sólrúnu en Jón Baldvin
45% vilja hvorki Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur né Jón Baldvin Hannibalsson sem næsta formann Samfylkingarinnar.
Þetta voru niðurstöður nýrrar könnunar MMR. Þá sýna niðurstöður að rösklega 35% vilja heldur Ingibjörgu Sólrúnu en 19% sögðust vilja Jón Baldvin. Sé eingöngu litið til þeirra sem sögðust ætla að kjósa Samfylkinguna í næstu Alþingiskosningum kemur í ljós að 68,2% sögðust heldur vilja að Ingibjörg Sólrún gegndi formannsembættinu, 12,7% sögðust heldur vilja að Jón Baldvin yrði formaður og 19,1% sögðust vilja hvorugt þeirra.
Spurt var: Kosningar um forystu Samfylkingarinnar fara fram á landsfundi flokksins dagana 27.-29. mars næstkomandi. Tveir aðilar hafa boðið sig fram til að gegna embætti formanns Samfylkingarinnar, þau Jón Baldvin Hannibalsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hvort þeirra myndir þú heldur vilja að yrði formaður Samfylkingarinnar?" Samtals tóku 89,0% afstöðu til spurningarinnar.
Spurning um stuðning við flokka var eftirfarandi: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú líklegast kjósa? Samtals tóku 61% afstöðu til spurningarinnar, aðrir kváðust óákveðnir (22%), myndu skila auðu (11%), myndu ekki kjósa (2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3%).(mbl.is)

Þessu konnun leiðir í ljós,að fleiri vilja Ingibjörgu Sólrúnu en Jón Baldvin.Það kemur ekki á óvart en það getur enn orðið breyting.
Björgvin Guðmiundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.