Laugardagur, 14. mars 2009
Frjálsi lífeyrissjóðurinn skerðir ekki lífeyri til félagsmanna
Frjálsi lífeyrissjóðurinn þarf ekki að skerða réttindi og lífeyri sjóðfélaga í tryggingadeild sjóðsins þrátt fyrir þann ólgusjó sem ríkti á verðbréfamörkuðum árið 2008. Í tilkynningu segir að tryggingafræðileg staða sjóðsins hafi verið neikvæð um 4,8% í lok árs 2008 sem er innan þeirra marka sem lög mæla fyrir um.
Í tilkynningunni segir að Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafi ekki farið varhluta af erfiðleikum á fjármálamörkuðum árið 2008. Aðgerðir í Eignastýringu Kaupþings, sem er rekstraraðili sjóðsins, höfðu þó miðað að því að minnka markvisst áhættu með því að auka vægi ríkisskuldabréfa og selja hlutabréf. Þannig tókst að draga verulega úr neikvæðum áhrifum á eignasafn Frjálsa lífeyrissjóðsins sem endurspeglast í ávöxtun sjóðsins árið 2008.
Hrein eign sjóðsins var í árslok rúmlega 68 milljarðar króna og jókst um 2 milljarða á árinu. Fjöldi sjóðfélaga í árslok var tæplega 42.000 en um 15.400 manns greiddu iðgjöld í sjóðinn á árinu.
Ávöxtun þriggja fjárfestingarleiða sjóðsins var neikvæð um 4,9% til 7,6% árið 2008. Jákvæð ávöxtun var af tveimur fjárfestingarleiðum sjóðsins, Frjálsi 3 skilaði 23,6% ávöxtun og Frjálsi 2 skilaði 12,3% ávöxtun.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.