Stórar lánveitingar Kaupþings hugsanlega brot gegn reglum

Stórar lánveitingar Kaupþings til bresk-íranska viðskiptamannsins Roberts Tchenguiz brutu hugsanlega gegn reglum um stórar áhættuskuldbindingar fjármálafyrirtækja. 30. júní 2008 voru útistandandi lán Kaupþings til Roberts Tchenguiz og félaga í hans eigu 230,2 milljarðar króna. Eiginfjárgrunnur bankans 30. júní var 582,9 milljarðar króna.

Það þýðir að lán til Tchenguiz námu 39,4% af eiginfjárgrunni bankans.

Í 3. gr. reglna nr. 216/2007 um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum segir að stórar áhættuskuldbindingar vegna einstakra viðskiptamanna eða fjárhagslegra tengdra aðila megi ekki fara yfir 25% af eiginfjárgrunni fjármálafyrirtækis.

 

Í reglunum koma fram viðmið um hvað undanskilja megi frá þessum útreikningi. Í f-lið 4.gr er vísað til handveðs í innstæðum og í j-lið er vísað í handveð í verðbréfum. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sagði í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í kjölfar umfjöllunar Morgunblaðsins um lánveitingar til eigenda og tengdra aðila Kaupþings að áhættuskuldbindingar til Tchenguiz hefðu verið eðlilegar, með vísan til þessa, þ.e handveðs í innstæðum og hlutabréfum. Hann gaf þó ekki upp hverjar skuldbindingarnar hefðu verið.

 Samtals námu útlán til Roberts Tchenguiz, Ágústs og Lýðs Guðmundssona og Ólafs Ólafssonar 478 milljörðum króna hinn 30. júní 2008. Lánin voru ýmist veitt þeim sjálfum, íslenskum fyrirtækjum sem þeir áttu eða eignarhaldsfélögum í Hollandi og á Tortola-eyju. Lán til Ágústs og Lýðs voru 169,1 milljarður króna og þ.a.l. 29% af eiginfjárgrunninum.(mbl.is)

Samtals námu lán til Tchenguiz 39,4% af eiginfjárgrunni bankans.Hvað var hér að gerast.Þetta hefur örugglega verið brot á reglum bankans og hvers vegna var bankinn að lána einstökum aðilum svona mikið og stórt hlutfall af af  eiginfjárgrunni bankans,þegar bankinn sagði við innlenda lántakendur,að það væru engir peningar til .Það hefur eitthvað mikið verið að þarna. Og vissulega ástæða til þess að taka mark á Evu Joly og rannsaka allt niður í kjölinn.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband