Föstudagur, 20. mars 2009
Geir baðst afsökunar á Skjá 1
Geir H. Haarde segir að langt sé í að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking fari aftur saman í samstarf. Þetta kom fram í spjalli Geirs við Sölva Tryggvason á Skjá einum nú í kvöld. Geir sagðist biðjast afsökunar á öllum þeim mistökum sem hann hefur gert. Hann gæti hinsvegar ekki beðist afsökunar á mistökum annarra.
Þetta með afsökunarbeiðnina er svolítið flókið mál. Ég ber auðvitað ábyrgð á öllum þeim mistökum sem ég hef gert og þau eru sjálfsagt mörg. Ég get beðist afsökunar á því," sagði Geir en mistök annarra svosem einkaaðila og aðila erlendis frá gæti hann ekki borið ábyrgð á.
Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að svara því heldur verða menn að leita að því hvar ábyrgðin liggur í málinu. Það er nú sérstaklega verið að rannsaka það núna og mér þykir miður að þetta skyldi gerast og það finnst öllum."
Geir sagði að fyrir kosningarnar 2007 hefðu allir flokkar verið ánægðir með það sem var að gerast í bankaheiminum og enginn hefði sagt neitt.
Ögmundur Jónasson hefði reyndar misst út úr sér að þar sem bankarnir væru að greiða svo há laun gætu þeir alveg eins farið úr landi. Hann hafi hinsvegar leiðrétt það seinna meira. Það var enginn að tala um neitt annað en að þessi þróun væri af hinu góða." (visir.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.