Spron gat ekki staðið við skuldbindingar sínar

Seðlabankinn mat stöðu SPRON þannig á föstudag að hann gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart viðskiptavinum sínum eða kröfuhöfum. Yfirvofandi vandamál sparisjóðsins gætu einnig haft neikvæð og keðjuverkandi áhrif á önnur fjármálafyrirtæki.

Fjármálaeftirlitið hefur birt á vef sínum ákvörðun um að beita heimildum laga til að taka yfir vald hluthafafundar SPRON og víkja stjórninni þegar frá. Eins og fram kom á blaðamannafundi viðskiptaráðherra í gær fólst í ákvörðuninni að skipuð er skilanefnd til að fara með öll málefni SPRON. Innlánin eru færð til Nýja Kaupþings banka og á það að gerast núna klukkan 9.

Í ákvörðuninni kemur fram að frá lokum október hefur eiginfjárstaða SPRON verið undir lögbundnum mörkum en Fjármálaeftirlitið veitt ítrekaða fresti í því skyni að gefa SPRON, í samvinnu við kröfuhafa, kost á að endurskipuleggja fjárhag sjóðsins á raunhæfan hátt.

Fyrir rúmri viku, eða 12. mars, óskaði Fjármálaeftirlitið eftir nánari upplýsingum um það hvernig SPRON hygðist uppfylla kröfur um nauðsynlegt eigið fé og laust fé og upplýsti alþjóðlega kröfuhafa um það síðastliðinn miðvikudag. Þar þess getið að leysa þyrfti eiginfjárvandann með öðrum aðferðum en lánalengingum.

Í svari SPRON sl. miðvikudag benti sparisjóðurinn á sölu fasteignabréfa til Íbúðarlánasjóðs sem leið til lausnar á fjármögnun félagsins. Er þar ráðgert að selja 43 milljarða kr. skuldabréfasafn og í framhaldinu annað safn veðskuldabréfa í erlendri mynt fyrir 20 milljarða kr. 

Seðlabankinn benti á að ólíklegt væri að þessi sala bætti eiginfjárstöðu Sparisjóðsins. Til þess verði ávöxtunarkrafan í þessum viðskiptum að vera lægri en sú krafa sem liggur til grundvallar bókfærðu verði bréfanna hjá sparisjóðnum.

Jafnframt benti Seðlabankinn á að til þess að viðskiptin við Íbúðarlánasjóð bæti lausafjárstöðu sparisjósins þurfi kaupverðið að vera hærra en nemur þeim lánum sem sparisjóðurinn hefur fengið hjá Seðlabankanum gegn veði í umræddum fasteignaveðsbréfum. 

.


 

Nýi Kaupþing banki yfirtekur skuldbindingar SPRON vegna innstæðna. Allir skilmálar innlána haldast óbreyttir. Yfirdráttur á veltureikningum flyst með sama hætti yfir.

Nýi Kaupþing banki tekur þó ekki peningamarkaðsinnlán frá fjármálafyrirtækjum.

Jafnframt yfirtekur Nýja Kaupþing skuldbindingar samkvæmt inn- og útflutningsábyrgðum, ábyrgðir vegna efnda fyrirtækja og einstaklinga sem tengjast reglulegri starfsemi. Ekki eru yfirteknar skuldbindingar dótturfélaga erlendis, fyrirtækja í greiðslustöðvun, skuldbindingar þeirrar sem eiga virkan eignarhluta í SPRON ofl. 

Stofnað verður sérstakt hlutafélag í eigu SPRON til að ganga frá þessum viðskiptum við Nýja Kaupþing. Á að vera búið að ganga frá þeim á hádegi á morgun.(mbl.is)

Það er furðulegt,að Spron skuli hafa snúið við rekstri sínum á örfáum árum.Sparisjóðurinn var mjög sterkur áður  en hann leiddist út í brask. Spron taldi nauðsynlegt eins of fleiri fyrirtæki að  taka upp hlutafélagsform,sagði,að þá ætti hann auðveldara með að keppa við önnur fjármálafyrirtæki.En þessi ákvörðun varð banabiti Spron. Síðan bættist það við,að' ýmsir hluthafar( stofnfjáreigendur) seldu hluti sína og tóku stórfé út úr Spron.Það var algerlega siðlaust.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband