Austurhöfn eignast Portus og Situs ( Tónlistarhúsið)

Austurhöfn-TR hefur eignast félögin Portus og Situs, sem höfðu með höndum uppbyggingu Tónlistar – og ráðstefnuhússins (TR), ásamt byggingarrétti á allri lóðinni að Austurbakka 2 eftir að samningsskilmálar þar um hafa nú verið undirritaðir af Austurhöfn, NBI hf., skilanefnd Landsbanka Íslands hf., menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjóra og Nýsi hf.

Með samkomulaginu tekur Austurhöfn við öllum réttindum og skyldum sem fylgja samningum um byggingu og rekstur TR. Áframhaldandi fjármögnun framkvæmdanna hefur jafnframt verið tryggð og er hún hluti af samkomulaginu. Áætlaður kostnaður við að ljúka verkefninu er 14,5 milljarðar króna, að meðtöldum vöxtum á byggingartíma.

Fyrr í vikunni var gengið frá samkomulagi Austurhafnar-TR og ÍAV, Íslenskra aðalverktaka, um verkframkvæmdina allt til loka. Það byggir í aðalatriðum á fyrirliggjandi samningum en tekur á breyttum verktíma, ýmsum viðaukum, sparnaðarmöguleikum og öðrum ráðstöfunum sem nauðsynlegar eru til að tryggja farsæl verklok. Miðað er við að verkinu ljúki í febrúar 2011 og að húsið verði tekið í notkun í apríl það ár, samkvæmt tilkynningu.

 

Um 150 starfsmenn starfa nú við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins, þeim verður nú fjölgað í 200 og í sumar er áætlað að starfsmannafjöldinn verði kominn yfir 300 manns. Gert er ráð fyrir að nú hefjist að nýju vinna við fyrsta áfanga bílakjallara og að lokið verði við hönnun lóðar á næstunni, svo unnt verði að vinna við næsta nágrenni TR sumarið 2010.

 

Landsbankinn hefur í dag skuldbundið sig til að veita Austurhöfn TR brúarfjármögnun í því skyni að tryggja áframhaldandi framkvæmdir við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins. 

Jafnframt því hafa Landsbankinn, Íslandsbanki hf. og Nýi Kaupþing banki hf. í dag komið sér saman um lánveitingu til verkefnisins að fjárhæð 14,5 milljarða króna, en sú fjárhæð mun duga til að ljúka byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins miðað við fyrirliggjandi áætlanir Austurhafnar TR.  Hlutdeild Landsbankans í lánsfjárhæðinni nemur nærri 8 milljörðum króna, en auk þessa mun bankinn veita margvíslega fyrirgreiðslu vegna verkframkvæmdanna, að því er segir í tilkynningu.(mbl.is)

Ég er ekki sannfærður um að rétt hafi verið að opinberir aðilar,ríki og borg gæfu gænt ljós áð ljúka tónlistarhúsinu.Það kostar 14,5 milljarða að ljúka við bygginguna og það eru miklir peningar fyrir aðila sem eiga enga peninga.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Fara til baka 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband