Þriðjudagur, 7. apríl 2009
Vilja innkalla kvótann og afnema verðtryggingu
Frjálslyndi flokkurinn leggur til að verðtrygging lána verði afnumin frá og með næstu áramótum. Flokkurinn styður ekki álver í hverri höfn en styður allt það sem getur skapað atvinnu næstu árin. Þetta sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.
Guðjón Arnar sagði flokkinn oft hafa mælst með lítið fylgi en rifið sig upp í kosningunum. Hann trúir því að sú verði raunin í kosningunum sem framundan eru. Frjálslyndi flokkurinn vill ekki aukna skattlagningu eða niðurskurð í velferðarkerfinu. Hann vill auðlindir í þjóðareigu og aflaheimildir til baka teknar. Hann vill fara úr þröngri stöðu þjóðarbúsins með sókn í framleiðslu. (mbl.is)
Stefna Frjálslyndra´í kvótamálum er góð.Og mér finnst hugmynd þeirra varðandi takmörkun verðtryggingar einnig athyglisverð.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.