Miðvikudagur, 8. apríl 2009
Stýrivextir fara í 15,5% í dag
Seðlabanki Íslands hefur lækkað stýrivexti um 1,5 prósentustig, í 15,5%. Er þetta í takt við væntingar markaðarins en flestir höfðu spáð 100-150 punkta lækkun stýrivaxta nú. Aðrir vextir Seðlabankans verða einnig lækkaðir í sama mæli.
Einungis eru liðnar tæpar þrjár vikur síðan peningastefnunefndin lækkaði stýrivextina um eitt prósentustig í 17% og hafa stýrivextir því lækkað um 2,5 prósentustig á þremur vikum, úr 18% í 15,5%. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabanka Íslands er 25. júní nk. en ársfundur bankans verður haldinn þann 17. apríl.
Það var fyrsta stýrivaxtaákvörðun nefndarinnar hinn 19. mars síðastliðinn. Þá kom fram það sjónarmið meðal sérfræðinga að með því að taka ákvörðun um aukavaxtaákvörðunardag benti það til frekari lækkunar á stýrivöxtum Seðlabankans innan tíðar líkt og nú hefur komið fram.
Kynningarfundur verður haldinn í Seðlabanka Íslands í dag klukkan 11 fyrir blaða- og fréttamenn og sérfræðinga ýmissa stofnana, háskóladeilda og samtaka í tilefni af ákvörðun peningastefnunefndar um stýrivexti Seðlabanka Íslands.(mbl.is)
Talin er alger nauðsyn á því að lækka vexti ört vegna fyrirtækja og heimila.Það stendur enginn undir þeim háu vöxtum sem í gildi eru.Ástæðan fyrir því að vextir lækka ekki örar er sú,að krónan er m,jög óstöðug og hefur hún lækkað á ný undanfarna daga.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.