Föstudagur, 10. apríl 2009
Dögg: Of mikill vandræðagangur hjá Sjálfstæðisflokknum
Dögg Pálsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að enn sé of mikill vandræðagangur af hálfu Sjálfstæðisflokksins vegna ofurstyrkjanna, sem flokkurinn fékk kortéri áður en löggjöf um fjármál stjórnmálaflokka tók gildi. Þeim vandræðagangi þurfi að linna og upplýsa alla atburðarásina vegna þessara ofurstyrkja.
Dögg segir á bloggsíðu sinni, að í því felist að upplýsa þurfi:
- Hverjir ákváðu að óska ætti eftir þessum styrkjum.
- Hverjir vissu um þá ákvörðun.
- Hverjir óskuðu eftir styrkjunum í nafni Sjálfstæðisflokksins.
- Við hvaða einstaklinga var talað hjá þeim fyrirtækjunum sem styrkina veittu.
- Hverjir vissu um móttöku flokksins á þessum styrkjum.
Þegar þessi atburðarás liggi skýr fyrir verði unnt að meta hvort einhverjir þurfi að axla ábyrgð vegna málsins. (mbl.is)
Spurningar Daggar eru allar eðlilegar.Það hefur t.d. verið mjög óljóst fram að þessu hverjir óskuðu eftir styrkjunum og hverjir vissu um móttöku þeirra.Hver var hlutur Guðlaugs Þórs í málinu?
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.