Fimmtudagur, 16. apríl 2009
VG stærstir í Norðurlandi eystra
Vinstri hreyfingin grænt framboð mælist stærsti stjórnmálaflokkurinn í Norðaustur-kjördæmi í nýrri Capacent Gallup könnun fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Könnunin var gerð dagana 13. - 15. apríl og úrtakið var 800 manns, svarhlutfall er tæp 63%.
Vinstri-græn fá stuðning 28 af hundraði kjósenda í Norðaustur-kjördæmi og fengju samkvæmt könnuninni þrjá þingmenn, bættu við sig kjördæmakjörnum manni frá því í kosningunum 2007. Vinstri-græn bæta við sig 8,4 prósentustigum.
Framsóknarmenn eru í öðru sæti með 25,6% og fengju tvo menn kjörna. Athygli vekur að Framsóknarmenn bæta við sig fylgi sem nemur einu prósentustigi frá kosningunum.
Samfylkingin bætir við sig hálfu prósentustigi frá kosningum og fær nú 21,3% og tvo þingmenn.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar átta prósentustigum frá kosningum og fær nú slétt 20% og tvo þingmenn. Aðrir fá ekki menn kjörna.
Borgarahreyfingin fær 2,8%, Frjálslyndir 1,7% og Lýðræðishreyfingin 0,5%. Eins og í öðrum kjördæmakönnunum er skipting jöfnunarsæta ekki skoðuð, en síðastur inn er þriðji maður Vinstri-grænna og næstur inn væri þriðji maður Framsóknarflokks.(ruv.is)

Þessi könnun er athyglisverð vegna fylgisaukningar VG og fylgistaps Sjálfstæðisflokksins.Sjálfstæðið tapar 8 prósentustigum.Fylgi Samfylkingar og Framsóknar er svipað og í kosningum,Samfylking bætir við sig 1/2 prósentustigi og Framsókn bætir við sig 1 prósenstustigi.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.