Föstudagur, 12. júní 2009
Árni Páll kallar eftir niðurskurðartillögum frá öðrum
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra telur óhjákvæmilegt að gefin verði skýr fyrirheit um lækkun hæstu launa, stórhert aðhald í yfirstjórn ríkisins, umtalsverðan sparnað í utanríkisþjónustu og verulega aukinn aga í öllum rekstrarútgjöldum ríkisins, til þess að unnt sé að taka ákvörðun um hver hlutur öryrkja og aldraðra eigi að vera í þeirri þjóðarsátt sem fram undan er".
Hann vill ekki staðfesta að til standi að skerða bætur til þessara hópa. Nei, en fólk kallar auðvitað eftir því að sjá hver er hin raunverulega samstaða um aðhaldsaðgerðir. Við viljum sjá merki þess að allir séu að taka á eftir getu, áður en við leitum eftir framlögum frá þeim sem lakast standa, til að bjarga efnahagslífinu."
Mjög mikilvægt sé að fá heildarmyndina, 170 milljarða gatið, áður en teknar verði endanlegar ákvarðanir um niðurskurð þessa árs. Hann hafi ekki enn séð hvernig það skuli gert.
Við erum ekki komin nógu langt í vinnunni til að loka árinu 2009. Við getum ekki tilkynnt um niðurskurð fyrr en við getum myndað samfélagslega samstöðu um hann. En eitt er víst: við brúum ekki 170 milljarða bilið með framlögum frá öryrkjum og öldruðum." - kóþ(visir.is)
Afstaða Árna Páls er eðlileg.Hann er með viðkvæmasta málaflokkinn,almannatryggngarnar, og hann getur ekki lagt fram niðurskurðartillögur í þeim málaflokki á meðan engar tillögur sjást hjá öðrum ráðuneytum. Sannleikurinn er sá,að það er mjög lítið svigrúm til aðhalds eða niðurskuðar í tryggingabótum almannatrygginga., Það er helst hjá þeim eru að vinna á almennum vinnumarkaði en ríkið hefur miklar skatttekjur af lífeyrisþegum sem eru að vinna og ef tekjutengingar eru auknar á ný hættir þetta fólk að vinna og ríkið tapar skatttekjunum.Ef þjarmað er að öðrum lífeyrisþegum leiðir það til aukinna veikinda og kemur fram í stórauknum útgjöldum í heilbrigðiskerfinu.Það er því betra að fara varlega.Aldraðir og öryrkjar búa við svo bág kjör að þeir eru ekki aflögufærir.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.