Miklar deilur á alþingi um ESB

Stjórnarandstaðan deildi hart á fundarstjórn forseta Alþingis við upphaf þingfundar í dag. Ráðgert hafði verið að þingfundur hæfist klukkan hálfellefu í morgun en fundinum var frestað fram á hádegi.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins virtust þeirrar skoðunar að frestur á þinginu væri vegna óeiningar í stjórnarmeirihlutanum um þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Bjarni Benediktsson sagði að þingsályktunartillagan og Icesave málið hefðu bæði truflað dagskrá þingsins. „ESB málið er auðvitað ekkert annað en djúp sprengja inn í þingið," sagði Bjarni og hélt því fram að með málinu væri verið að sprengja allt í tætlur.

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að eðlilegar skýringar væru á frestun þingfunda. „Þingmenn verða auðvitað bara að búa við það að það gæti þurft að fresta þingi í einn og hálfan tíma þegar verið er að afgreiða eitt stærsta máli í sögu þings og þjóðar," sagði Helgi Hjörvar og vísaði í ESB þingsályktunartillöguna. (mbl.is)

Enda þótt ESB málið sé komið úr utanríkismálanefnd er alls óvíst hvernig málinu reiðir af á þinginu. Hæglega gæti farið svo,að þingið mundi samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn en það mundi þýða tvær þjóðaratkvæðagreiðslur.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband