Laugardagur, 11. júlí 2009
Umræður á alþingi í dag um aðild að ESB
Þingfundur hófst á Alþingi klukkan 10:30 og var þá fram haldið síðari umræðu um þingsályktunartillögu stjórnarflokkanna um ESB-aðild. Síðari umræða hófst um hádegi í gær en þingfundi var frestað laust fyrir miðnætti.
Ræðutími var tvöfaldaður að ósk fjölmargra þingmanna. Enn eru 24 þingmenn á mælendaskrá og má hver um sig má tala í 40 mínútur í senn. Einn þingmaður hefur sett sig á mælendaskrá í annað sinn við umræðuna og má tala í 20 mínútur. Nýti allir ræðutímann til fulls eru því a.m.k. 16 klukkustundir eftir af umræðunni, fyrir utan andsvör og svör við andsvörum.
Engu að síður er vonast til að atkvæði verði greidd um tillöguna á mánudag. Samfylkingin leggur mikla áherslu á að umsókn um aðildarviðræður við Evrópusambandið verði send til Brussel innan tveggja vikna eða fyrir 27. júlí, en þá hefst fundur utanríkisráðherra aðildarríkja ESB.(mbl.is)
Sjálfstæðismenn berjast harðlega gegn tillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarviðræður.Samfylkingin berst fyrir aðildarviðræðum en VG þingmenn fara ser hægt.Talið er að tillagana verði samþykkt en mjótt er á munum. Atkvæðagreiðsla verður eftir helgi.
Björgvin Guðmundsson

Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.