Eindæma veðurblíða á höfuðborgarsvæðinu

Það stefnir í að dagurinn í dag verði sá heitasti á Suðvesturhorninu það sem af er sumri. Hiti þar hefur verið að mælast í kringum 22 stig. Hlýjast á landinu er á höfuðborgarsvæðinu. Hitamet í Reykjavík í júlí er tæp 26 stig og mældist það 30.júlí í fyrra. Dagurinn í dag er því nokkuð langt frá metinu.

Næstu daga verður skýjað og því kólnar væntanlega eitthvað á suður- og vesturlandi, en þó gæti hlýnað aftur næstu helgi.

Fyrir norðan og austan verður heldur svalt og rigning í vikunni.(mbl.is)

Það er gaman þegar veðrið er svona gott,hiti og sólskin eins og best gerist

í  heitari löndum.Við hjónin vorum úti á svölum og sleiktum sólskinið og drukkum þar kaffi og te.

 

Björgvin Guðmundsson.

 

Fara til baka 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband