Mánudagur, 13. júlí 2009
Tillagan um aðild að ESB rædd áfram í dag
Þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu verður áfram til umræðu í þinginu í dag á þingfundi sem hefst klukkan 15. Þá er gagnályktunartillaga stjórnarandstöðunnar um undirbúning mögulegrar umsóknar um aðild að Evrópusambandinu jafnframt á dagskrá.
Nokkuð gekk á við umræður um aðildarumsókn í þinginu fyrir helgi. Meðal annars hélt Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna, því fram að hann hafi verið beittur þrýstingi vegna málsins og yfirgaf þingsal í kjölfarið. Tveir aðrir þingmenn yfirgáfu salinn einnig í stuðningsskyni við Ásmund líkt og Vísir greindi frá.
Að öllum líkindum verður því áfram hart tekist á um málið í dag, þó atkvæðagreiðsla um tillöguna bíði líklegast næstu daga.(visir,is)
Talið er,að ef til vill verði unnt að ganga til atkvæða og afgreiða tillöguna á morgun. Þó fer það algerleg eftir því hvernig umræður ganga í dag.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.