Miðvikudagur, 22. júlí 2009
Höfða mál gegn félögum Björgólfsfeðga,eign félaga á Bresku Jómfrúreyjum
Þrotabú Samsonar hefur höfðað mál gegn Samson Global Holdings í Lúxemborg vegna skuldar upp á 109,5 milljónir evra, eða um 19,4 milljarða króna á núverandi gengi. Skuldin er tilkomin vegna lánalínu [subordinated revolving credit facility] sem Samson Global Holdings fékk hjá félaginu.
Samson Global Holdings var stofnað á Bresku Jómfrúaeyjum og er í eigu félaganna Rosetta og Rainwood, sem eru í eigu Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Auk þess er krafist að ákvæði lánasamnings sem gerður var vegna sama láns verði ógiltur en með umræddu samningsákvæði var lánið, sem upprunalega hljóðaði upp á 90 milljónir evra, gert víkjandi gagnvart öðrum skuldum Samsonar Global. Samningurinn var gerður 9. nóvember 2007, ellefu mánuðum áður en Samson óskaði eftir greiðslustöðvun.
Málshöfðun þrotabús Samsonar gegn félagi Björgólfsfeðga í Lúxemborg er aðeins ein af fimm málshöfðunum þrotabúsins gegn félögum sem tengjast þeim, en Morgunblaðið hefur stefnurnar undir höndum. Þrotabúið krefst þess m.a. að kaupsamningi frá 25. júní 2008 þegar Samson keypti allt hlutafé í MGM eignarhaldsfélagi af Urriða, dótturfélagi Straums Burðaráss, á 822,4 milljónir króna, verði rift. Eina eign MGM var 16,7% hlutur í Árvakri. Þrotabúið telur að um óskiljanlegt kaupverð sé að ræða með hliðsjón af fjárhagsstöðu Árvakurs á þeim tíma og vill rifta kaupunum.(mbl.is)
Þetta eru ef til vill fyrstu málin gegn félögum,sem teygja anga sína í skattaskjólin á Jómfrúreyjum.Íslendingar hafa stofnað mörg félög í skattaskjólum og þar eru áreiðanleg miklir fjármunir geymdir.Spurningin er sú hvort það tekst að ná í þessa fjármuni.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.