Föstudagur, 28. ágúst 2009
Bretar gefa yfirlýsingu um Ice save
Eins og búast má við mun Bretland skoða vandlega þau skilyrði, sem láninu hafa verið sett til að tryggja að þeir séu raunhæfir," segir í yfirlýsingunni, sem breska ríkisútvarpið BBC vitnar til.
Þetta lán er mikilvægt og jákvætt skref í rétta átt fyrir alla þá sem tengjast málinu og það er mikilvægt að við tökum okkur tíma til að fara yfir málið til að tryggja bestu niðurstöðuna fyrir alla aðila."
Alþingi samþykkti frumvarp um ríkisábyrgðina í morgun með 34 atkvæðum þingmanna stjórnarflokkanna tveggja. 14 þingmenn greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en 14 sátu hjá.
Við fall gamla Landsbanka Íslands urðu inneignir 340 þúsund sparifjáreigendur óaðgengilegir í útbúum bankans í Bretlandi og Hollandi. Heildarupphæð þessara innistæðna nam jafnvirði rúmlega 1200 milljörðum króna. Tryggingasjóður innstæðueigenda ábyrgist 20.887 evrur á hvern reikning.(mbl.is)
Eðlilegt er,að Bretar taki sér nokkurn tíma til þess að skoða fyrirvarana.En ég tel yfirgnæfandi líkur á þvi að þeir samþykki fyrirvarana.Það er í þágu þeirra ekki síður en Íslendinga að skilmálar á láninu séu viðráðanlegir Íslendingum. Ef svo ólíklega færi að Bretar höfnuðu fyrirvörunum þá yrði ekki um neina ríkisábyrgð að ræða og báðir aðilar staddir á byrjunarreit á ný.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.