Koma lífeyrissjóðirnir að endurreisn atvinnulífsins?

ÞAÐ hafa komið fram hugmyndir í þessa vera áður, en í ljósi stöðunnar hér á landi hefur meiri þungi færst í umræðuna. Ég fagna þessum hugmyndum. Hagsmunir lífeyrissjóðanna og þjóðarinnar eru samofnir í þessum málum,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og stjórnarformaður lífeyrissjóðsins Gildis. Hann telur skynsamlegt að stofna sérstakan sjóð fyrir fjárfestingar.

Sameiginlegur sjóður lífeyrissjóðanna, sem mun hafa það að markmiði að styðja við lífvænleg fyrirtæki sem fóru illa út úr hruni bankanna sl. haust auk þess að fjárfesta í fleiri verkefnum, verður kynntur fyrir forsvarsmönnum lífeyrissjóðanna 7. september nk. Að sögn Arnars Sigurmundssonar, formanns Landssamtaka lífeyrissjóðanna, mun framhaldið ráðast af því hvernig forsvarsmenn lífeyrissjóðanna taka í stofnun sjóðsins, sem kallaður hefur verið Fjárfestingasjóður Íslands í undirbúningsvinnunni.

„Að fundi loknum munu sjóðirnir fá einn mánuð til þess að taka afstöðu til þess hvort þeir vilji vera með í þeim sjóði sem hugsanlega verður komið á fót. Öðru fremur verður lagt upp með að lífeyrissjóðirnir séu að taka þátt í arðbærum og skynsamlegum fjárfestingum. Ég tel að það sé skynsamlegt skoða þessa möguleika vel, ekki síst þar sem það er öllum í hag að reyna eftir fremsta megni að koma hjólum efnahagslífsins í gang á nýjan leik.“(mbl.is)

Það er fagnaðarefni,að skriður skuli að komast á þátttöku lífeyrissjóðanna í endurreisn atvinnilífsins eftir hrunið. Það hefur mikið verið rætt um það en ekkert orðið af framkvæmdum.

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband