Miðvikudagur, 2. september 2009
Ætlar Landsbankinn að gefa Toyota á Íslandi eftir marga milljarða?
Skilanefnd Landsbankans mun hafa ætlað að taka yfir Toyota á Íslandi vegna mikilla skulda fyrirtækisins og Magnúsar Kristinssonar við bankann.Nú segir Mbl. í dag,að Toyota erlendis hafi neitað þessu og sagt,að bankinn gæti ekki verið innflytjandi bila. Þetta er eins og hver önnur vitleysa. Kaupþing yfirtók Heklu og lét ekki seljendur bíla ytra segja sér fyrir verkum. Það er ekkert mál að panta ósk frá seljendum bíla ytra um að þeir vilji ekki að bankarnir yfirtaki umboðin. En þeir ráða þessu ekki.Auk þess er verið að stofna eignaumsýslufélag,bankaumsýslufélag, sem getur annast slík fyrirtæki eins og Toyota á Íslandi.Svo virðist sem skilanefnd Landsbankans sé að undirbúa það að gefa Magnúsi Kristinssyni eftir einhverja milljarða jafnvel tugi milljarða á meðan ekki er unnt að gefa húseigendum eftir nokkrar krónur.Slík mismunun gengur ekki.
Mbl. segir frá þessu máli á eftirfarandi hátt í dag:
Áhugi var fyrir því innan skilanefndar Landsbankans að taka yfir Toyota á Íslandi, vegna skuldar félagsins Smáeyjar sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar.
Stjórnendur í höfuðstöðvum Toyota í Evrópu töldu að banki væri ekki hæfur innflutningsaðili fyrir Toyota-bifreiðarnar og því var hugsanleg yfirtaka andvana fædd, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Toyota á Íslandi verður því rekið áfram a.m.k. um sinn undir óbreyttu eignarhaldi.
Á sömu forsendu getur Nýi Landsbankinn ekki tekið yfir reksturinn, en bankinn er með veð í rekstrartækjum og vörubirgðum Toyota á Íslandi vegna lánveitinga til félagsins, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Toyota gerir samninga við innflutningsaðila í þeim löndum þar sem fyrirtækið flytur ekki sjálft inn bíla, eins og t.d. á Íslandi. Toyota í Evrópu setur ekki nein fyrirfram gefin skilyrði sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til að fá sérstakan sérleyfissamning heldur er það metið í hvert og eitt skipti, samkvæmt upplýsingum frá Toyota á Íslandi. Höfuðstöðvar Toyota eru í þeirri aðstöðu að geta afturkallað leyfi til innflutnings á bifreiðunum hér á landi.
Skilanefnd Landsbankans hafði í hyggju að ganga að veðum í Toyota vegna lánveitinga til Smáeyjar ehf., fjárfestingarfélags Magnúsar, en Smáey keypti allt hlutafé í P. Samúelssyni, sem átti Toyota á Íslandi, árið 2005 og voru kaupin m.a. fjármögnuð með láni frá Landsbankanum.
Toyota á Íslandi er eitt margra félaga sem skilanefndin hefur veð í vegna skulda félaga í eigu Magnúsar, en í svipaðri stöðu er Domino's Pizza á Íslandi, sem er einnig undir óbeinum yfirráðum skilanefndar Landsbankans. Að sögn Páls Benediktssonar, talsmanns skilanefndar Landsbankans, hafa engar skuldir félaga í eigu Magnúsar verið afskrifaðar. Skilanefndin á sem stendur í viðræðum við Magnús vegna skulda sem eru á fimmta tug milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur ekki verið gengið að neinum veðum vegna skuldanna.
Skilanefndin hefur tvo valkosti til að verja hagsmuni sína vegna lánveitinganna, þ.e. að leyfa Magnúsi að reka félögin áfram gegn niðurfellingu hluta skuldanna eða taka félögin yfir. Sama hvor leiðin verður farin mun skilanefndin þurfa að afskrifa einhvern hluta skuldanna þar sem lán til félaga í eigu Magnúsar voru mörg hver veitt þegar verðbólan í íslensku efnahagslífi var sem stærst.
Björgvin Guðmundsson
T

Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.