Sunnudagur, 6. september 2009
Jón Danielsson bjartsýnni á ástandið hér en áður
Jón Daníelsson, hagfræðingur, segist vera mun bjartsýnni en áður um stöðu mála á Íslandi. Hann segir að á meðan Icesave-málið var óleyst þá hafi ekkert verið hægt að gera. Hins vegar telji hann að samkomulagið sé mjög slæmt og að hann hefði kosið gegn því ef hann væri á þingi.
Hann segir hins vegar að mesta vandamálið sé þau gjaldeyrishöft sem hér ríki. Mestu mistökin sem gerð hafi verið hér sé setning þeirra. Þetta kom fram í Silfri Egils í dag.
Gjaldeyrishöftin haldi til að mynda ekki og auk þess þá komi þau í veg fyrir að útlendir fjárfestar setji fjármuni í íslenskt atvinnulíf. Jón segir að það besta sem Seðlabankinn geti gert í fyrramálið sé að viðurkenna það að gjaldeyrishöftin hafi verið mistök og taka þau af.
Jón segir ljóst að Ísland hafi ekki efni á því að eyða þeim peningum sem ríkið fær að láni hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og norrænu ríkjunum. Það sé glórulaust að taka lán sem þjóðin getur ekki eytt út af gjaldeyrishöftunum. (mbl,is)
Jón taldi,að lækkun krónunnar hefði hjálpað útflutningsaðilum og ferðaiðnaði. En Jón gerði mikið úr nauðsyn þess að afnema gjaldeyrishöftin og var þar ósammmála Stiglitz hagfræðingi sem taldi,að Island gæti fengið erlenda fjárfesta þó höftin væru í gildi og vitnaði í því sambandi til Kína,sem er með höft en mikla fjárfestingu.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.