Miðvikudagur, 30. september 2009
Ríkisstjórnin hangir á bláþræði
Náist ekki samstaða um lyktir Icesave-málsins innan ríkisstjórnarflokkanna í vikunni er ríkisstjórnarsamstarfinu sjálfhætt. Þetta er mat Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hefur misst alla þolinmæði vegna málsins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Jóhanna og aðrir stjórnarliðar telja sig ekki lengur geta treyst á stuðning neinna þingmanna stjórnarandstöðunnar í málinu og því þurfi stjórnarflokkarnir að hafa þingmeirihluta.
Líf stjórnarinnar veltur því aftur á afstöðu Ögmundar Jónassonar og samherja hans innan Vinstri grænna, sem lýst hafa miklum efasemdum um málið, líkt og það gerði þegar málið kom til kasta Alþingis í sumar. Þingflokkar stjórnarflokkanna munu hittast á fundum í dag og freista þess að leysa málið í sátt. Þá gæti einnig komið til aukafundar í ríkisstjórn í dag.
Eins og kunnugt er hafa Hollendingar og Bretar ekki getað fellt sig að fullu við þá fyrirvara sem Alþingi samþykkti við ríkisábyrgð vegna Icesave-lánsins í sumar. Þeir vilja meðal annars að ábyrgðin gildi lengur en til 2024, ólíkt því sem kveðið er á um í fyrirvörum Alþingis.
Jóhanna sagði eftir ríkisstjórnarfund í gær að áður en ákveðið yrði hvort Icesave-samningarnir færu aftur fyrir Alþingi þyrfti að vera ljóst hvort ríkisstjórnin hefði meirihluta fyrir málinu í þinginu. Það yrði að fást á hreint í vikunni. Spurð hvort stjórnin mundi falla næðist ekki samstaða sagði hún að þá yrði að skoða stöðuna upp á nýtt. Ekki fór á milli mála að þar beindi hún spjótum sínum að Ögmundi og öðrum efasemdarmönnum um Icesave-málið innan VG.
Yfirlýsingar forsætisráðherra fara ekki framhjá mér," sagði Ögmundur Jónasson í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. Hann vildi að öðru leyti lítið segja um málið, en tók þó fram að Icesave-málið væri enn óútkljáð og ljóst væri að það þyrfti að koma aftur fyrir þingið.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mun hitta breska og hollenska kollega sína á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Istanbúl eftir helgi. Þar mun hann reyna að ná endanlegri niðurstöðu í málið, líkast til í formi viðauka við samningana.
Óformlegar viðræður um lausn málsins hafa staðið yfir við Hollendinga og Breta síðustu daga og vikur. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins liggur nú þegar nokkuð ljóst fyrir hversu langt þeir eru tilbúnir að teygja sig í átt að kröfum Alþingis.(visir,is)
Ekki er ljóst hvað vakir fyrir ríkisstjórninni.En sennilega vill hún ganga eitthvað frekar til móts við Breta og Hollendinga til þess að leysa málið. Ef ríkisstjórnin hefur í hyggju að framlengja ríkisábyrgðina eitthvað framyfir 2024 mun það mæta mikilli mótstöðu á alþingi og jafnvel innan stjórnarliðsins. Ef unnt er að leysa málið án þess að framlengja ríkisábyrgðina er það léttara undir fæti. En svo virðist sem Jóhanna ætli að leggja ríkisstjórnina að veði við lausn málsins,þe. ef sú tillaga,sem ríkisstjórnin leggur fyrir alþingi verður ekki samþykkt,segir hún af sér.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.