Lán Pólverja til Íslands i höfn

Lánið sem Pólverjar  lána Íslendingum er til 12 ára, með fimm ára afborgunarlausum tíma og leggur Íslandi til fjármögnun til langs tíma.

Í sameiginlegri tilkynningu frá fjármálaráðuneytum Íslands og Póllands segir að lánið sýni samstöðu Pólverja með Íslendingum og staðfastan stuðning þeirra við Ísland í þeim efnahags- og fjármálaþrengingum sem nú er við að glíma. Þá segir í tilkynningunni að lánið verði borgað út í þremur jöfnum hlutagreiðslum sem verði tengdar annarri, þriðju og fjórðu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands með AGS og verður hver greiðsla háð því að viðkomandi endurskoðun hafi verið samþykkt. Lánið verður veitt og borgað út í pólskum slotum (PLN). Samhliða útborgun lánsfjárins mun pólska fjármálaráðuneytið gefa út pólsk ríkisskuldabréf í fjórum tilgreindum skuldabréfaflokkum í sömu fjárhæð og útborgun lánsins nemur hverju sinni. Lántakandi skuldbindur sig samkvæmt lánssamningnum til þess að verja útborguðu lánsfé til kaupa á hinum tilgreindu pólsku ríkisskuldabréfum. Greiðsluferlarnir samkvæmt lánssamningnum munu samsvara vaxtagreiðslu- og endurgreiðsluferlum hinna tilgreindu pólsku ríkiskuldabréfa. Hreinn kostnaður lántakanda mun þar af leiðandi eingöngu verða vaxtaálag sem greiða skal samtímis vaxtagreiðslum af pólsku ríkisskuldabréfunum. Vaxtaálagið verður 2% á ári fram til 31. desember 2015 en 1.3% á ári þar eftir. Lánið verður endurgreitt með fjórum afborgunum á lokagjalddögum hinna tilgreindu pólsku ríkisskuldabréfa í október 2015, 2017 og 2019 og í september 2022.
Pólsku ríkisskuldabréfin sem íslenska ríkið eignast samkvæmt lánssamningnum munu styðja við gjaldeyrisforða Íslands. Þar sem lánsféð verður varðveitt í völdum pólskum ríkisskuldabréfum í pólskum slotum með endurgreiðslu- og vaxtagreiðsluferlum sem samsvara greiðsluferlum lánssamningsins er bæði vaxtaáhættu og gjaldmiðlaáhættu þar með eytt. (ruv.is)

Pólverjar sýna mikinn vinarhug til Íslands með því að samþykkja lán til okkar án þess að binda það því skilyrði að Ice save deilan sér leyst eins og Norðurlönd gera.Aðeins Færeyingar og Pólverjar hafa reynst vinir í raun.

 

Björgvin Guðmundssin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

Já það segirðu satt, Og það má þjóðin ekki gleyma, Því svona sína vinir hversu brýnt er að standa saman, Og hér með þakka ég þessum þjóðum frá hjarta rótum mínum, Og að láta ekki þennan sora samning sem ICE SAVE er hafa áhrif á sína gjörðir,ég hrópa ÞREFALT HÚRRA  FIRIR ÞESSUM ÞJÓÐUM. TAKK FIRIR MIG

Jón Sveinsson, 4.10.2009 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband