ASÍ tilbúið í styrjöld

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, telur að launafólk hafi sjaldan eða aldrei staðið frammi fyrir jafn alvarlegri stöðu í efnahags- og atvinnumálum og nú. Hann segir að ef að atvinnurekendur vilji stríð muni þeir fá stríð. Þetta kom fram í ræðu Gylfa á þingi Starfsgreinasambandsins fyrr í dag.

Gylfi sagðist vera þeirra skoðunar að órofa samstaða launþega hafi skilað mikilvægum árangri við að verja kjarasamninginn sem gerður var í febrúar 2008. Hann sagði samninginn vera komin í uppnám því langlundargeð atvinnurekenda gagnvart úrræðaleysi stjórnvalda í nánast öllum málum væri þrotið. Þrátt fyrir náið samstarf samtaka launafólks og atvinnurekenda gæti komið til uppsagna kjarasamninga í lok mánaðarins.

„Það væri auðvitað alveg skelfileg staða, en ég hef líka sagt það alveg skýrt við talsmenn atvinnurekenda. Ef þið segið upp kjarasamningi og hafið af láglaunafólki réttmætar launahækkanir mun verkalýðshreyfingin beita afli sínu til þess að tryggja að til þeirra hækkana muni koma. Allt annað verður lagt til hliðar á meðan! Ef þið viljið stríð þá munið þið fá stríð," sagði forsetinn í ræðu sinni.(visir,is)

Ekki er það efnilegt í miðri kreppu ef til átaka kemur á milli aðila vinnumarkaðarins,sem ef til vill mundu leiða til verkfalls.Reyna verður allar leiðir til sátta og koma í veg fyrir of mikil  átök.Nóg er nú samt.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband