Föstudagur, 9. október 2009
Ísland fær skjóta meferð í aðildarviðræðum við ESB
Í árlegri skýrslu framkvæmdastjórnar ESB um stöðu mála innan sambandsins er það staðfest að Ísland muni fá skjóta meðferð í aðildarviðræðum sínum við ESB.
Skýrslan á að koma út þann 14. október n.k. en Reuters hefur uppkast að henni undir höndum og birtir upplýsingar úr því í dag.
Skýrslan virðist staðfesta að Ísland, sem sótti um ESB aðild nýlega eftir að hafa orðið illa úti í kreppunni, geti siglt gegnum aðildarviðræður tiltölulega skjótt þar sem landið er þegar aðili að hinum sameiginlega markaði og Schengen samkomulaginu," segir í frétt Reuters.
Framkvæmdastjórnin mun taka tillit til þessara þátta í áliti sínu," segir í uppkastinu að skýrslunni.
Að öðru leyti kemur m.a. fram í þessu uppkasti að Króatía getið lokið sínum aðildarviðræðum strax á næsta ári en Tyrkland verður enn að bíða eftir því að komast að samningaborðinu.(visir.is)
Þetta eru góðar fréttir.Ísland sem aðili að EES á að fá skjóta meðferð í aðildarviðræðum. Ef mál þróast jákvætt gæti þetta orðið til þess að Evrópski seðlabankinn mundi veita okkur aðstoð á tíma aðildarviðræðna.En Ísland gerist ekki aðili að ESB nema við fáum viðunandi samning í sjávarútvegsmálum.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.